Lið frá aðildarfyrirtækjum Samorku keppa um titilinn Fagmeistari Samorku 2024!

Keppt verður í eftirfarandi greinum:

1.  Tengja inn á lágspennustreng

2.  Uppsetning á rofa í götuskáp

3.  Tengja inn á mæli

4.  Stígvélakast

Það er enginn annar en Landinn okkar allra, Gísli Einarsson, sjónvarpsmaður með meiru, sem lýsir Fagkeppni Samorku í ár.

Atli Kanill þeytir skífum á meðan á keppninni stendur!

Hér eru nokkrar myndir frá Tækni- og framkvæmdadeginum árið 2019 (þegar síðasta Fagþing raforku var haldið í Keflavík). Þetta er ávallt mikil stemning og gleði!